Mótmæla færri snjómokstursdögum

Markaðsstofa Norðurlands, Ferðamálasamtök Þingeyjarsveitar, Húsavíkurstofa, Mývatnsstofa ehf og Markaðssvið Austurbrúar lýsa yfir áhyggjum af og mótmæla því að snjómokstri milli Egilsstaða og Mývatnssveitar skulu hafa verið fækkað niður í tvo daga á viku.

„Ferðamennska um landið hefur farið vaxandi yfir vetrartímann og ljóst er að góðar samgöngur spila mikilvægt hlutverk í uppbyggingu ferðamannastaða og ferðaþjónustu. Því er nauðsynlegt að bregðast við sem fyrst, þar sem að ekki er hægt að selja Ísland allt árið ef grunnþjónustan eins og snjómokstur er ekki til staðar. Enginn ætlast til að vegir séu opnaðir í vitlausu veðri en um leið og það gengur niður er sjálfsagt að opna veginn," segir í ályktun.

Nýjast