Mokstur Ránargötu á Akureyri óviðunandi að mati íbúa

Íbúi við Ránargötu á Akureyri segir snjómokstur óviðunandi. Hann fer fram á úrbætur og hefur sent Vikudegi ítarlegt bréf og nokkrar myndir máli sínu til stuðnings. Með því að tvísmella á myndirnar stækka þær.

 Það er ekki hægt að neita því að sá hluti Ránargötu sem stendur sunnan Eyrarvegar er með þrengri götum bæjarins og oft á tíðum afar varasamur að aka um vegna þessa. Ég verð að segja að ég og aðrir íbúar suðurhluta Ránargötu erum orðnir langþreyttir á starfsháttum þeirra sem sjá um snjómokstur hér í götunni. Auðvitað hafa allir skilning á því að mikið hefur snjóað og afskaplega mikið að gera hjá þeim sem hafa þennan málaflokk á sinni könnu.

En þegar kemur að okkur í röðinni þá viljum við að viðkomandi skili af sér sómasamlegu verki. Það er okkar skoðun að svo hafi ekki verið í vetur því að nær einungis er hreinsuð aksturslínan en okkur ekki gert kleift að leggja bílum í götunni. Í einhver skipti þá hefur það gengið eftir en einungis ef maður hefur gert sér ferð út og átt orð við viðkomandi gröfumann og útskýrt málið fyrir honum.

Til útskýringa þá fór ég út í kvöld, 22. nóvember og tók myndir af því hvernig er skilið við götuna af hálfu mokstursaðila. Eins og sjá má þá er ekki nokkur leið að leggja bílum við austur kant götunnar svo að umferð komist fram hjá. Nú er það svo að allir húseigendur hafa stæði á lóðinni við húsin sín en margir eru með auka bíl, auk þess sem gestkomandi eiga þess ekki kost að leggja í götunni eins og mokstri hefur verið háttað í vetur.

Á þeirri mynd sem sýnir norðurenda götuhlutans og sést hvar bílum er lagt við austurkant má sjá að ekki er langt í girðinguna við vesturkantinn. Þegar snjóað hefur þá er afar varasamt að aka þarna um því ekki má mikið út af bera að bílar renni ekki annað hvort á kyrrstæða bifreið eða á girðinguna.

Fróðlegt er líka að bera saman myndirnar sem ég tók í Ránargötu og Hríseyjargötu. Þar fer ósanngjarn samanburður eins og myndirnar sýna.

Og hver getur svo skýringin verið?

Ein þeirra gæti verið að slökkviliðsstjóri bæjarins búi þar en sú sem ég tel líklegasta er að mokstursmenn eiga auðvelt með að losa sig við snjóinn úr Hríseyjargötunni á opið svæði sem er beint norður af Hríseyjargötunni en hreinlega nenni ekki að aka með snjóinn úr Ránargötunni og losa hann á þessu opna svæði.

Þetta ástand er algerlega óviðunnandi og verður að kippa í liðinn strax. Snjónum verður að koma í burtu úr götunni hvort sem grafan ekur með hann burtu eða honum sé ekið burtu á vagni eða vörubíl.

 

Með kærri kveðju og von um skjótar úrbætur,

Jón Einar Jóhannsson

Íbúi í Ránargötu 5 og útsvarsgreiðandi

 

Nýjast