Mokstur hafinn

Nú er slæmt ferðaveður víðast hvar á Norðausturlandi, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Ófært er um Víkur- og Ljósavatnsskarð en verið er að moka. Þæfingsfærð er á Fljótsheiði en ófært á Hófaskarði og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Þungfært er á Sandvíkurheiði.

Veðurstofan segir að í dag verði noroðaustan 3-8 m/sek á Norðurlandi eystra og dálítil él. Frost 1 til 8 stig, kaldast í innsveitum.

Nýjast