Norðurorka hf. er með þjónustusamning við hugbúnaðarfyrirtæki og við prentsmiðju sem felur í sér að fyrir hver mánaðarmót er send skrá yfir þá reikninga sem á að prenta og senda út það skiptið. Þegar viðskiptavinir Norðurorku fóru skoða reikningana sem bárust í þessari viku kom í ljós að um er að ræða reikninga fyrir febrúar með gjalddaga í mars 2013, segir í tilkynningu frá Norðurorku