"MILLI ÞESS AÐ KOMAST YFIR OG LIFA VIÐ LIGGUR HUNDURINN GRAFINN."

Steinunn Sigurðardóttir fjallar um skáldsögur sínar Jójó og Fyrir Lísu í ljósi nýrra afhjúpana um barnaníð á Íslandi, í Hofi fimmtudaginn 14. mars kl 17:00.Steinunn fjallaði í fyrri viku um þetta efni á fjölsóttum fyrirlestri á Háskólatorgi í Reykjavík.

 Um leið og Steinunn Sigurðardóttir fer yfir sköpunarsögu skáldsaganna tveggja, kemur hún einnig inn á tengslin við íslenskan veruleika og nýlegar afhjúpanir um kynferðisbrot, gegn drengjum sérstaklega.

Hvaða erindi eiga tveir Berlínarbúar, þýskur geislalæknir og franskur róni, sem aðalpersónur í íslenska skáldsögu?  Hvernig datt Steinunni Sigurðardóttur í hug - eftir að hafa sent frá sér Reykjavíkurskáldsögur með ívafi ljóða eins og Tímaþjófinn og Sólskinshest, íslenska ferðasögu fjögurra kvenna, eins og Hjartastað - að fjalla um sameiginlega lífsreynslu og vináttu Martins læknis og Martins róna í Berlín? En þeir reynast vera þjáningarbræður sem glíma báðir við afleiðingar af því að hafa verið gert mein þegar þeir voru börn.

Steinunn Sigurðardóttir á að baki langan og glæsilegan höfundarferil, en fyrsta bók hennar,  ljóðabókin Sífellur, kom út 1969.  Nýjasta ljóðabók hennar, Ástarljóð af landi, var þýdd á þýsku og frönsku og ljóð eftir hana hafa birst í tímaritum og safnbókum á mörgum tungumálum, nú síðast á japönsku.

Nýjast