17. október, 2013 - 13:25
Vilhelm Þorsteinsson/heimasíða Slippsins
Smíði er nú hafinn á vinnslubúnaði fyrir skip sem verið er að smíða í Tyrklandi og koma um tuttugu starfsmenn Slippsins til með að vinna við það verkefni. Þetta kemur fram á heimasíðu Slippsins í dag. Framundan er síðan mikil törn í hefðbundinni starsemi stöðvarinnar, segir á heimasíðunni. Vilhelm þorsteinsson, skip Samherja fer í flotkvína til smávægilegs viðhalds og síðan er von á tveimur erlendum togurum.