Mikil ásókn í Gospelkór Akureyrar - aldrei verið stærri

Mikil aukning hefur orðið í Gospelkór Akureyrar síðastliðna mánuði. Alls eru meðlimir kórsins í ár ríflega 50 talsins og enn sækir að. Kórinn samanstendur af áhugasöngfólki úr ýmsum áttum og er kórstjórnandinn Marína Ósk Þórólfsdóttir ekki nema 25 ára gömul. Þrátt fyrir ungan aldur hefur þessi Keflavíkurmær starfað sem tónlistakennari, kórstjóri og söngkona um árabil og stefnir nú í haust á rytmískt söngnám og bachelor gráðu á því sviði.
 
 
Framundan eru tónleikar hjá Gospelkórnum í Hofi menningarhúsi á Akureyri þriðjudaginn næstkomandi kl: 20 en þar verða flutt klassísk gospellög í bland við þekkt popp-og rokklög í gospelútsetningu.
 
 
Kórstjórinn lofar miklu fjöri og hressum tónleikum en ásamt kórnum kemur hinn alkunni Ívar Helgason fram. Ívar hóf leikferil sinn 11 ára gamall í titilhlutverki barnaóperunnar Litli sótarinn eftir Benjamin Britten í uppfærslu Íslensku óperunnar og hefur Ívar verið viðloðandi sviðið allar götur síðan.

 
 
Hann hóf söngnám við Tónlistarskólann í Hafnarfirði og síðar við Söngskólann í Reykjavík en haustið 2001 hóf Ívar nám við söngleikjadeild Tónlistarháskólans í Vínarborg og útskrifaðist með láði árið 2003. Ívar hefur komið fram í fjölda söngleikja til að mynda í Austurríki, Sviss, Þýskalandi og á Ítalíu en fluttist heim til Íslands árið 2007 ásamt fjölskyldu sinni.

 
 
Síðan þá hefur hann starfað hjá Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar ásamt því að starfa með ýmsum leiklistahópum og tekið þátt í vinsælum söngleikjum á borð við Óliver, Hárið og Gulleyjan svo eitthvað sé nefnt.
 
„Við erum rosalega spennt að koma fram með Ívari. Hann er reynslubolti og er samspil kórsins og hans dínamískt. Það verður svaka stuð á okkur þarna og ég vona að fólk grípi tækifærið og lyfti sér upp á þriðjudagskvöldið og komi að sjá okkur, og svo kostar miðinn bara 2.500 kr.“ segir Marína hress.

Nýjast