Sóley Björk Stefánsdóttir nýr oddviti Vinstri grænna á Akureyri segir mikilvægt að íbúar hafi greiðan aðgang að gögnum bæjarins, sem einhverra hluta vegna eru almennt ekki birt í dag.
Ég vil líka beita mér fyrir því að fundir nefnda og ráða verði opnari og aðgengilegri fólki. Fyrsta skrefið í þessum efnum er gagnsæið og ég mun beita mér fyrir úrbótum í þessum efnum. Til þessa hefur mikið verið talað, en lítið framkvæmt. Vinstri græn á Akureyri eru nú með einn bæjarfulltrúa. Andrea Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi sækist ekki eftir endurkjöri. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir Morgunblaðið fengi VG tvo fulltrúa, ef kosið væri í dag. Sóley Björk sér fyrir sér gott gengi í komandi kosningum. Markmiðið er að ná inn þremur bæjarfulltrúum. Andrea hefur unnið gott starf sl. fjögur ár og við höfum því góðan byr í seglin.
Ertu bæjarstjóraefni?
Okkar markmið er að stuðla að meirihlutasamstarfi félagshyggjuafla í bænum og sem oddviti VG skorast ég ekki undan þeirri ábyrgð komi sú staða upp. Núverandi bæjarstjóri hefur staðið sig mjög vel og mér líkar það fyrirkomulag sem nú er ágætlega.
Sóley er í ítarlegu viðtali í prentútgáfu Vikudags