Metsumar að baki hjá bílaleigu Höldurs

„Þetta var mjög gott sumar, eitt það allra besta í manna minnum," segir Steingrímur Birgisson framkvæmdastjóri Hölds, bílaleigu.  Mikill fjöldi erlendra ferðamanna sótti Ísland heim og ferðaðist drjúgur hluti þeirra um landið með bílaleigubílum.  

Höldur var með um 2100 bíla í umferð í sumar.  „Það var oft mikið álag á starfsfólki okkar, mikið að gera og sem dæmi er hægt að nefna að þegar mest var afgreiddum við einn bíl á mínútu frá Keflavíkurflugvelli.  Gott starfsfólk skiptir gríðarlega miklu máli og við erum þakklát fyrir hversu vel okkur hefur haldist á starfsfólki," segir Steingrímur

Hann segir að ferðamannasumarið hafi verið lengra en oft áður, bæði var meiri umferð lengra fram í ágúst en vant var og eins hófst hin eiginlega ferðamannatíð fyrr en oft áður, hálfum mánuði eða þremur vikum jafnvel.  „Það er mjög gott að ferðasumarið er að lengjast í báða enda, það gengur ekki upp að allir séu á ferðinni sömu fjórar vikurnar í júlí."

Steingrímur segir metsumar að baki, bæði hvað varðar bókanir og eins veltu, en þar spili veikt gengi íslensku krónunnar inn í.  Flestir bílar fyrirtækisins eru á erlendum lánum, en það vegur þungt á móti að tekjur eru í erlendri mynd, „þannig að við erum að því leytinu betur sett en mörg önnur fyrirtæki," segir Steingrímur.

Hann gerir ráð fyrir þungum vetri, samdráttur hafi oðið á innanlandsmarkaði í kjölfar kreppunnar og ekki við öðru að búast en hann verði viðvarandi næsta vetur líka.  Bílaflotinn verður því gíraður niður og verða um 8-900 bílar í umferð hjá fyrirtækinu í vetur.  Hins vegar megi allt eins gera ráð fyrir að aftur verið jafnmikið að gera næsta sumar og var nú í sumar.

Nýjast