Metnaður til góðra verka

Njáll Trausti Friðbertsson
Njáll Trausti Friðbertsson

„Hvernig bæjarfélagi viljum við búa í? Ég var spurður að því hvort ég sem sveitarstjórnarmaður legði ekki of mikla áherslu á atvinnumál og samgöngumál, en léti mér velferðamálin í léttu rúmi liggja. Það er öðru nær.

Við erum flest sammála um að á Akureyri eigi að vera samfélag velferðar og umhyggju og félagsþjónusta bæjarins eigi áfram að vera tryggð. Enginn á að fara á mis við umönnun í veikindum af fjárhagslegum ástæðum. Sama gildir um umönnun eldri borgara. Allir eiga að geta treyst því að hafa einhvers staðar höfði sínu að að halla. Þessi manngildissjónarmið eiga sér djúpar rætur í sjálfstæðisstefnunni, frá öndverðu hefur Sjálfstæðisflokkurinn strengt félagslegt öryggisnet til að grípa þá sem ekki hafa haft möguleika á að tryggja velferð sína af eigin rammleik. Með skynsemi og ráðdeild er vitaskuld hægt að tryggja að þessi háleitu markmið nái fram að ganga í öflugu bæjarfélagi eins og Akureyri,“ skrifar Njáll Trausti Friðbertssom, sem tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Greinin er hérna

Nýjast