Metfjöldi á Sæludegi

Þátttakan í sveitafitness var með besta móti.
Þátttakan í sveitafitness var með besta móti.

Aldrei hafa fleiri gestir komið á Sæludaginn í Hörgársveit sem haldinn var hátíðlegur sl. laugardag. Hátt í 800 manns fylgdust með spennandi keppni í sveitafitness þar sem bændur knúðu fram sigur á vinnumönnum eftir mikla baráttu.Traktoraspyrnan nýtur sífellt meiri vinsælda og voru fleiri keppendur í ár en nokkru sinni fyrr.

Dráttarvélarnar voru allar frá því um 1970 eða eldri og ljóst að margir keppendur lögðu meira upp úr útlitinu en árangri í spyrnunni sjálfri. Komið hefur til tals að veita sérstök menningarverðlaun á næsta ári fyrir heildarsvip í keppninni. Söguganga Leikfélags Hörgdæla var afar vel heppnuð, en farið var á slóðir djáknans á Myrká. Leikfélagið hyggst taka til sýninga leikverk byggt á þeirri þekktu sögu á vetri komanda, er fram kemur í fréttatilkynningu.

Nýjast