Umsóknir í Háskólann á Akureyri hafa aldrei í sögu skólans verið fleiri, en alls bárust um 2.340 umsóknir að þessu sinni. Þetta er um 15% aukning frá síðasta ári og rúmlega 8% aukning frá árinu 2018, sem var fyrra metár umsókna við háskólann.
Metfjöldi umsókna er í framhaldsnám í Viðskiptafræðideild. Þar talar framhaldsnám í stjórnun til umsækjenda en námið er 100% fjarnám. Þar fjöldar umsóknum um 70% milli ára. Þá er líka afar jákvætt að sjá að í allri umræðunni um yfirvofandi kennaraskort og dvínandi áhuga á kennaranámi þá er aukning umsókna í Kennaradeild hátt í 25% og metfjöldi frá upphafi.
„Háskólinn á Akureyri hefur vaxið ört á undanförnum árum og á starfsfólk þar stóran þátt sem hefur lagt mikið á sig við að byggja upp nám þar sem gæði og metnaður hafa ætíð verið í forgangi. Við gerum okkur grein fyrir því að slíkri aukningu fylgja áskoranir en ég er þess handviss að við stöndum undir þeim. Þegar upp er staðið erum við þakklát fyrir traustið sem okkur er sýnt og ég held ég tali fyrir allra hönd að við erum spennt að taka á móti nýjum stúdentum sem hyggjast hefja hér nám í haust,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.
Afar jákvætt er hve vel er tekið í þær námsleiðir sem einungis eru kenndar við Háskólann á Akureyri. Háskólinn hefur skapað sér ákveðna sérstöðu hér á landi með námsleiðum á borð við líftækni, félagsvísindi, fjölmiðlafræði, iðjuþjálfunarfræði. Þá er Háskólinn á Akureyri eini háskóli landsins sem býður upp á nám til BS prófs í sjávarútvegsfræði og aukast umsóknir þar um 55% á milli ára.