Metanvinnsla undirbúin á Glerárdal

Glerárdalur
Glerárdalur

Stjórn Norðurorku hefur ákveðið að halda áfram að undirbúa vinnslu á metangasi á Glerárdal, þrátt fyrir að vinnanlegt magn sé um helmingi minna en fyrstu mælingar gáfu til kynna. Áætlaður kostnaður er talinn óbreyttur, eða um 300 milljonir króna. Á meðan mælingar stóðu yfir lá verkefnið nðri en búast má við að framkvæmdir og smíði búnaðar taki um eitt ár.

 

Samkvæmt nýjum mælingum er gert ráð fyrir að hægt verði að vinna um 600 þúsund rúmmetra af metangasi á ári á Glerárdal til ársins 2030 að lágmarki, en að hámarki til ársins 2040. Til að setja þetta í samhengi er miðað við að venjulgur fólksbíll noti um eittþúsund rúmmetra af metangasi á ári. „Við erum bjartsýn á þetta verkefni og vinnum áfram með málið þar sem frá var horfið. Með breyttri tækni gæti vinnslan auk þess orðið meiri, eða um 1200 þúsund rúmmetrar á ári,“ segir Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku.

karleskil@vikudagur.is

 

 

 

 

Nýjast