Gröftur í Vaðlaheiðargöngum gekk vel í síðustu viku og lengdust þau um 96 metra, sem er nýtt met. Alls eru göngin orðin 1614 metrar, sem er 22,5 % af heildarlengd ganganna. Unnið er alla daga vikunar á 12 klst vöktum dag- og næturvakt. Þrjár vaktir skipta á milli sín vinnunni og er unnið í 10 daga og síðan er 5 daga frí.