Mercedes-Benz bílar sýndir í Hofi

Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds við A-Class, sem er bíll ársins 2013 á ÍSlandi/mynd Þorgeir Ba…
Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds við A-Class, sem er bíll ársins 2013 á ÍSlandi/mynd Þorgeir Baldursson

 

Mercedes-Benz bílar voru sýndir í Hofi á Akureyri í gær. Meðal annars var sýndur  nýr A-Class, bíll ársins 2013 á Íslandi,

Höldur mun í sumar taka við þjónustu fyrir Mercedes-Benz fólks- og sendibíla á Akureyri. ,,Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt verkefni og við erum fullir tilhlökkunar. Ný aðstaða Hölds sem verður að Þórsstíg 4, Akureyri, mun gjörbylta allri aðstöðu fyrir viðskiptavini og starfsmenn. Lyftum fjölgar úr 8 í 12 og sérstök forgreiningaraðstaða verður byggð við húsið. Nánast allur tækjabúnaður verður nýr og verkstæðið eitt það fullkomnasta á landinu hvað búnað og aðstöðu varðar. Útkoman verður stórbætt þjónusta við Mercedes-Benz eigendur á svæðinu. Nýja verkstæðið mun uppfylla strangar gæðakröfur Daimler til þjónustu og viðgerða og verður þá annað verkstæðið á landinu sem hlýtur þá vottun ,“ segir Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Hölds.

Nýjast