Þær Kayla Grimsley, Tahnai Annis og Mateja Zver munu allar leika með Íslandsmeisturum Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. Þetta er gríðarlegur liðstyrkur fyrir norðankonur en þær Kayla Grimsley og Tahnai Annis spiluðu lykilhlutverk með liði Þórs/KA sl. sumar. Mateja Zver lék með liðinu frá árunum 2008-2011 og var á þeim tíma einn allra besti leikmaður deildarinnar.