Í kosningabaráttu er ekkert þægilegra fyrir stjórnmálamenn en að umræðan snúist um mál sem skipta fólki í tvo hópa, með eða á móti. Umræðan snýst um að mála andstæðinginn annaðhvort svartan eða hvítan, upphrópanir ganga á víxl og pólitískur rétttrúnaður verður til sem gengur að umræðunni dauðri. Flókin málefni barin niður í eina setningu sem kemur vel út í auglýsingu. Eftir kosningar fara málin svo "óvænt" að flækjast, málamiðlanir verða nauðsynlegar og efndum er slegið á frest.
Kosningar snúast ekki bara um einstök mál, þó það megi halda ef fylgist er með yfirlýsingum í kosningabaráttu. Fyrir okkur kjósendur er mikilvægt að velja fulltrúa sem tekur ákvarðanir í takt við eigin lífsskoðanir. Það á jafnt við um mál sem eru í umræðunni í dag, sem og þau mál sem eiga eftir að koma upp.
Gott dæmi er umræðan um Evrópusambandið (ESB). Það er eitt að hafa þá skoðun að ESB sé ekki rétti kosturinn fyrir Íslendinga og þannig búast við að segja "nei" í væntanlegum kosningum, en það er allt annað og mun einstrengingslegra viðhorf að vilja slíta samræðum. Viljum við að landinu sé stjórnað af fólki sem telur sig ekki geta rætt málin og náð samningi sem síðan er lagður er fyrir þjóðina?
Við hjá Bjartri framtíð teljum að aðild gæti verið góður kostur fyrir þjóðina. Við viljum klára þær samningaviðræður sem nú eru langt komnar til þess að fullvissa okkur um að við skiljum kostina og gallana. Það vinnst ekkert með því að slíta samræðum á þessu stigi. Þannig upphlaup gæti líka sett EES samstarfið í óþarfa uppnám, einmitt nú þegar íslensk fyrirtæki þurfa stöðugleika í sínu rekstrarumhverfi.
Það að snúa umræðu um ESB upp í spurninguna "með eða á móti", án þess að vita hvað aðild þýðir fyrir íslenska þjóð, er lýðskrum. Þeir einu sem geta svarað þannig spurningu, án þess að hafa séð samninginn, eru þeir sem eru með eða á móti ESB vegna pólitísks rétttrúnaðar sem er búið að ala á í ýmsum flokkum.
Eins og George Orwell sagði í bókinni "1984" (lausleg þýðing mín): "Rétttrúnaður þýðir að hugsa ekki - að þurfa ekki að hugsa. Rétttrúnaður er meðvitundarleysi." Við hjá Bjartri Framtíð erum ekki meðvitundarlaus. Við erum vakandi og við viljum hugsa upp bestu lausnirnar og vinna með þeim sem vilja taka þátt í að færa Íslandi bjarta framtíð.
Preben Jón Pétursson
skipar 2 sætið fyrir Bjarta framtíð í Norðausturkjördæmi