Matur alltaf heillað mig mest

Gunnar Már Sigfússon hefur um árabil verið einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari og heilsuráðgjafi landsins. Hann sleit barnskónum í Brekkunni á Akureyri en býr nú í Hafnarfirði ásamt konu sinni og fjórum börnum. Gunnar hefur nýverið slegið í gegn með bókinni Lág kolvetna lífstíllinn sem kom í verslanir um miðjan mars og hefur bókin selst í um 6000 eintökum. Vikudagur sló á þráðinn til Gunnars.

-Þegar þú hugsar heim til Akureyrar, hvað kemur fyrst upp í hugann?

„Væntumþykja um alla mína æsku fyrst og fremst. Það er ávallt gaman að koma heim og upplifa alla gömlu staðina. Ég keyri alltaf um gamla hverfið mitt á Brekkunni þegar ég kem norður og það er ánægjulegt að sjá hve bærinn hefur tekið miklum breytingum í jákvæða átt.“

-Snúum okkur að bókinni. Hún hefur selst tvisvar upp á fjórum mánuðum og verið mest selda bók landsins frá því hún kom út. Koma þessar viðtökur þér á óvart?

„Nei, í rauninni ekki. Ég fylgist vel með því sem er að gerast í kringum mig í þessum fræðum. Bókin byggist á því að minnka neyslu kolvetna, eins og brauði, pasta, hrísgrjónum og kartöflum og auka neyslu á fitu í staðinn sem aðalorkugjafa líkamans. Próteinneysla er svipuð og manneldismarkmið mæla með en munurinn liggur í magninu á fitu og kolvetnum.“

throstur@vikudagur.is

Þetta er aðeins brot úr viðtali við Gunnar Má sem má nálgast í heild sinni í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast