Matreiðslumeistarar á Norðurlandi færðu Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis 1,877.590 krónur, sem er upphæðin er safnaðist á Mottuboðinu 2013. Þetta er stærsta einstaka framlagið sem afhent er félaginu, en í fyrra gáfu matreiðslumeistararnir 1,3 milljónir króna.
Fulltrúar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis segja styrkinn skipta miklu máli fyrir starfsemi félagsins. Reykjavíkurmaraþon, Pabbar og pizzur, Dömulegir dekurdagar og aðrar smærri fjáraflanir skiluðu félaginu 900 þús. krónum.
Krabbameinsfélag Siglufjarðar hefur formlega sameinast Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.