Markvissari rekstur nauðsynlegur

Guðmundur Baldvin Guðmundsson/mynd karl eskil
Guðmundur Baldvin Guðmundsson/mynd karl eskil

Guðmundur Baldvin Guðmundsson oddviti Framsóknarflokksins á Akureyri segist á að markmiðið um þrjá bæjarfulltrúa á næsta kjörtímabili náist. Hann segir að fræðslu- og félagsmál verði ofarlega á stefnuskrá flokksins, einnig atvinnumál og samskipti við ríkisvaldið. „Ég held þó að kosningabaráttan komi til með að snúast töluvert um hvaða fólk kjósendur vilja sjá í forsvari fyrir bæinn sinn á komandi kjörtímabili.“

Aukin aðstoð

„Eitt af því sem ég hef miklar áhyggur af er brottfall nemenda úr skólum. Ég hef um árabil setið í stjórn Starfsendurhæfingar Norðurlands og kynnst þeim vandamálum sem skapast hafa hjá unglingum sem flosnað hafa upp úr námi. Þarna tel að við þurfum að bregðst við með markvissari hætti. Rannsóknir sýna að við getum greint þá einstaklinga sem eru í áhættuhóp, því er mikilvægt að grípa inn í strax í grunnskóla og auka aðstoð bæði við nemendur og fjölskyldur þeirra. Í því sambandi vil ég skoða hvernig hægt er að bæta líðan einstaklingsins og nefni sem dæmi aukna sálfræðiaðstoð og heilsueflingu.“

Rekstur bæjarins

Guðmundur Baldvin hefur gagnrýnt núverandi meirihluta fyrir að reka bæinn með halla.

„Ég hef gjarnan líkt rekstrinum við stórt flutningaskip og ef breyta á um stefnu þarf að gera það með góðum fyrirvara og undirbúningi. Við þurfum því að mínu mati að stórbæta alla áætlunargerð hjá bænum bæði til skemmri og lengri tíma litið og skapa með því forsendur fyrir markvissari rekstri í framtíðinni.“

 Nánar er rætt við Guðmund Baldvin í prentútgáfu Vikudags

karleskil@vikudagur.is

Nýjast