Markmiðið að vinna titla

Heimir Örn Árnason í baráttunni gegn FH síðasta vetur.
Heimir Örn Árnason í baráttunni gegn FH síðasta vetur.

„Veturinn leggst ljómandi vel í mig eins og alltaf,” segir Heimir Örn Árnason annar þjálfari handknattleiksliðs Akureyrar. N1-deild karla rúllar af stað á mánudaginn kemur eftir sumarfrí með heilli umferð og hefur Akureyri leik á heimavelli gegn FH.  

Heimir lá ekki á svörum þegar hann var spurður hvort liðið stefndi á sjálfan Íslandsmeistaratitillinn. „Það er alltaf sett stefnan á að vinna þá titla sem í boði eru, annars væri maður ekkert í þessu,” segir hann en nánar er rætt við Heimi í prentútgáfu Vikudags í dag.

Í árlegri spá þjálfara, fyrirliða og forráðarmanna liðanna í deildinni er Akureyri spáð fjórða sæti deildarinnar en Haukum er spáð sigri.

Spá N1-deildar karla:

1. Haukar - 237 stig.
2. FH - 193
3. ÍR - 175
4. Akureyri - 170
5. Afturelding - 130
6. Fram - 128
7. Valur - 112
8. HK - 103

Þreföld umferð. Fjögurra liða úrslitakeppni og neðsta liðið fellur en næstneðsta fer í umspil.

Nýjast