María og Sævar best á árinu

María Guðmundsdóttir.
María Guðmundsdóttir.

Skíðasamband Íslands hefur valið Maríu Guðmundsdóttur frá Akureyri og Sævar Birgisson frá Ólafsfirði skíðafólk ársins 2012. María hefur verið ein fremsta skíðakona landsins í alpagreinum undanfarin ár og er Íslandsmeistari í svigi. Hún átti mjög gott tímabil og bætti stöðu sína á heimslista.

Hún komst hæst í 287. sæti í svigi og færðist upp um 158. sæti á tímabilinu. Í stórsvigi færðist hún upp um 419. sæti á heimslista. María sigraði á fjórum sterkum alþjóðlegum FIS mótum Noregi og varð í öðru sæti á fimm mótum. María meiddist illa á Skíðamóti Íslands í apríl sl. en hefur náð góðum bata og nálgast nú sitt fyrra form.

Sævar hefur verið í fremstu röð skíðagöngumanna landsins undanfarin ár. Hann hefur tekið stöðugum framförum á árinu í keppni á erlendri grundu og stefnir á að komast á Ólympíuleikana í Sochi í Rússlandi árið 2014. Sævar hefur stórbætt sinn fyrri árangur í vetur og náði m.a. Ólympíulágmarki á FIS móti í Idrefjell í Svíþjóð í byrjun mánaðarins þegar hann hafnaði í 13. sæti. Fyrir þann árangur náði hann 86 FIS stigum en Ólympíulágmarkið er 120 FIS stig. Þetta er besti árangur sem skíðagöngumaður hefur náð í hátt í 20 ár. Sævar var einnig Íslandsmeistari í sprettgöngu á Skíðamóti Íslands sem fram fór á Akureyri síðasta vetur.

Nýjast