Við auglýstum í síðustu viku eftir jarðgangamönnum, bifvélavirkjum, tækjastjórum og bílstjórum, mér sýnist að áhuginn fyrir þessum störfum sé mikill. Tveimur dögum eftir að auglýsingin birtist í Vikudegi voru komnar í hús yfir 50 umsóknir, þannig að við verðum ekki vandræðum með að manna þessarstöður, segir Jón Leví Hilmarsson verkefnisstjóri Ósafls, sem sér um gerð Vaðlaheiðarganga. Í byrjun verða ráðnir 10 til 15 starfsmenn, sem ætlað er að sjá um ýmsa undirbúningsvinnu. Þegar sjálf gangagerðin hefst verða væntanlega ráðnir fleiri starfsmenn.
Tæki og vinnubúðir
Fyrsta verkið verður að koma fyrir vinnubúðum, verkstæði, lager og skrifstofum. Allur undirbúningur gengur ágætlega og ég býst við að hjólin fari að snúast fyrir alvöru kringum páskana, segir Jón Leví.
Framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga ráðinn fljótlega
36 umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra Vaðalheiðarganga og segir Pétur Þór Jónasson framkvæmdastjóri Eyþings að verið sé að ræða við umsækjendur þessa dagana. Væntanlega verði ráðið í stöðuna á næstunni.