Einingu-Iðju bárust 600 umsóknir um orlofsíbúð, orlofshús eða viku að eigin vali, sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Ekki er hægt að verða við óskum allra, 440 fengu já en 160 fengu nei. Þeir sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 19. apríl nk. Í byrjun maí verður endurúthlutað til þeirra sem fengu nei. Ef eitthvað verður laust að því loknu verður opnað á netinu fyrir það sem laust er og þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.