Hjálparstarfinu á Eyjafjarðarsvæðinu bárust 300 beiðnir um aðstoð fyrir jólin. Á bak við hverja umsókn getur verið allt fá einum einstaklingi upp í sex til átta manna fjölskyldu, þannig að ekki hægt að áætla nákvæmlega hversu margir njóta hjálpar. Sigurveig Bergsteinsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Akureyrar segir sannarlega víða þröngt í búi.
Já, það er mikil og skelfileg neyð víða og margir þarfnast aðstoðar. Í stærsta hópnum er fólk sem er á einhverjum bótum.Hjá þessu fólki er þröngt í búi og nánast ekkert má út af bregða. Ef bíllinn bilar, aukast útgjöldin og ef einhver önnur óvænt útgjöld verða, fer fjárhagurinn hreinlega úr skorðum. Og staðan hjá fólki sem er í eigin húsnæði er í mörgum tilvikum brothætt,svo ekki sé meira sagt.
Sigurveig segir að fólk beri sig þrátt fyrir allt vel.
Yfirleitt ótrúlega vel, en svo eru líka dæmi um niðurbrotna einstaklinga sem hingað koma. Margir misstu nánast allar sínar eigur í hruninu, stökkbreyttu lánin hafa sett strik í reikninginn og oft er erfitt að selja eignirnar því þá eru eftir skuldir af lánum sem fólk er með í eftirdragi. Þannig að það er stór hópur sem á um sárt að binda um þessar mundir og skrefin til okkar hafa reynst mörgum þung og erfið.
Að hjálparstarfinu standa Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd,Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn á Akureyri.
Þorri fólks sér ekki leið út úr vandanum og reynir að lifa fyrir daginn í dag. Kvíði vegna næstu mánaðamóta er algengur, enda vilja flestir standa í skilum ef þess er nokkur kostur.
karleskil@vikudagur.is