Erlendir ferðamenn á Akureyri setja sinn svip á bæinn þessa dagana og hjá Icelandair hótel Akureyri fá þeir mannbrodda áður en haldið er af stað og hefur þessi þjónusta mælst mjög vel fyrir hjá gestum hótelsins í hálkunni undanfarinna daga.
Starfsfólk hótelsins segir að gestirnir séu mjög hrifnir af bænum, þeir eigi til dæmis vart orð til að lýsa aðdáun sinni á heita vatninu og öllum aðbúnaði í Sundlaug Akureyrar. Einnig lofi þeir mjög veitingastaði bæjarins, sem og þjónustu.