Málþing um framtíð Hríseyjar

Áhugahópur um framtíð Hríseyjar boðar til málþings laugardaginn 14. september. Umræðuefni fundarins verða m.a.: Atvinnumál, byggðaþróun, þjónusta við íbúa, samgöngur, sumarhús, afþreying, ferðaþjónusta, heilbrigðismál og umhverfismál svo fátt eitt sé nefnt.

Hópurinn hvetur alla til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum eða bara til að hlusta á það sem aðrir hafa að segja. Allir sem láta sig málefni Hríseyjar varða eiga erindi á málþingið sem verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Hrísey og hefst kl. 12 og lýkur klukkan 17.

Á fundinn hafa boðað komu sína fulltrúar úr bæjarstjórn Akureyrarbæjar og Einingu Iðju. Þingmönnum og fleirum hefur einnig verið boðin þátttaka. Skráning á fundinn er á netfanginu www.hrisey.net og  í síma 864 1426.

Í tengslum við fundinn og störf hópsins hefur verið sett af stað skoðanakönnun á heimasíðunni www.hrisey.net sem allir eru beðnir að svara. Hún er ekki eingöngu fyrir Hríseyinga heldur alla áhugasama. Hægt er að nálgast útprentað eintak í Júllabúð.

Nýjast