Við áttum mjög góðan fund þar sem við ræddum framtíð ýmissa verkefna og fjármögnun þeirra. Kristján Þór þekkir þessi verkefni vel sem fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og nú þingmaður kjördæmisins til sex ára. Viðbrögð ráðherrans voru mjög jákvæð og hann er tilbúinn að leita allra leiða til að koma til móts við óskir okkar. Hann gerði okkur samt grein fyrir erfiðri stöðu ríkissjóðs, segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri, sem heimsótti Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í gær ásamt Margréti Guðjónsdóttur framkvæmdastjóra Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Við fórum yfir rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og aukið álag á starfsfólk stofnunarinnar og þörfina fyrir aukið fjármagn, meðal annars til að styrkja reksturinn þar sem sveitarfélagið hefur veri að hlaupa undir bagga vegna hallarekstur stofnunarinnar.Við ræddum barna- og unglingageðlækningar á Akureyri og þörfina fyrir tryggari og öruggari þjónustu á því sviði og einnig var farið yfir fjárframlög ríkisins til Sjúkrahússins á Akureyri og mikilvægi þess að efla og styrkja rekstur stærstu sjúkrastofnunar utan höfuðborgarsvæðisins, segir Eiríkur Björn.
Líknardeild á Akureyri var sömuleiðis á dagskrá fundarins í gær.
Ég spurðist fyrir um framhald vinnu vegna yfirfærslu málefna aldraðra frá ríki til sveitarfélaga og gerði ráðherranum grein fyrir því að sveitarfélagið gæti ekki staðið undir rekstri verkefna eins og heilsugæslu og öldrunarþjónustu sem fjármagna ætti af ríkinu, segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri.