Á Dalvík hefur nú tekið til starfa lýsisframleiðsla undir merkjum CLO ehf. Verksmiðjan er til húsa við Hafnarbraut 15 sem áður hefur hýst rækjuvinnslu SFD, kjúklingasláturhús og fiskvinnslu. Lýsisvinnslan hefur nú þegar ráðið til sín tvo starfsmenn og er trygg sala á allri framleiðslu fyrirtækisins.
Verksmiðjan er sprottin upp af verkefni sem unnið var við Háskólann á Akureyri og þróað áfram á styrk frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar. Í verksmiðjunni, sem er sú eina sinnar tegundar, verður unnið kaldhreinsað lýsi og er ætlunin að hráefnið komi frá Eyjafirði og nærsvæðum.
Afkastageta verksmiðjunnar er 8 tonn af lifur á dag og er áætlað að framleiðsla verði komin á fullan skrið nú í september, segir í tilkynningu