Lottó: 19 milljónir norður

Eigendur vinningsmiðans frá síðustu helgi hafa gefið sig fram til Íslenskrar getspár.

Það voru lukkulegir Norðlendingar sem hlutu vinninginn en þeir áttu leið til Reykjavíkur og keyptu miðann góða,  í N1 við Ártúnshöfða. Það má því sannarlega segja að þetta hafi verið ferð til fjár þar sem miðinn hafði að geyma 19 milljóna króna vinning.

Eigendur miðans eru að vonum sælir með vinninginn og að þeirra sögn á hann eftir að koma sér einstaklega vel. Þeir ætla þó að leyfa jólum og áramótum að líða áður en ákvörðun verður tekin um ráðstöfun vinnsingsins góða.

Nýjast