Á annað hundrað manns eru nú á biðlista hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir geðheilbrigðisþjónustu og hlutfall ungs folks fer ört vaxandi. Þetta segir Sigmundur Sigfússon forstöðulæknir geðdeildar sjúkrahússins.
Algengustu ástæðurnar eru kvíðasjúkdómar og þunglyndi. Biðtíminn eftir þjónustu er oft nokkrir mánuðir og sumum verðum við að hafna eða vísa annað, segir Sigmundur. Á legudeildinni var metár í fyrra með 300 innlögnum, sem flestar voru fyrirvaralausar bráðainnlagnir.
Í Vikudegi í síðustu viku var greint frá auknu brottfalli úr Verkmenntaskólanum á Akureyri sem að stórum hluta má rekja til andlegra veikinda. Sigmundur segir að taka verði á vandanum með festu og fjölga starfsmönnum á geðheilbrigðissviðinu.
Auka framboð á meðferðarúrræðum
Á barna og unglingageðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er yfirlæknir og svo sálfræðingur í hlutastarfi. Þessir tveir starfsmenn þjóna íbúum á öllu Norður- og Austurlandi. Það liggur í augum uppi að þeir komast aðeins yfir að veita hluta af þeim börnum á svæðinu, sem þjást af geðröskunum, meðferð. Það þarf að auka framboð á meðferðarúrræðum til muna og leggja áherslu á að efla heilsugæslustöðvar til að greina og meðhöndla fólk með geðraskanir og tilfinningalegan vanda, segir Sigmundur.
Hann bendir á að þótt vandinn sé sláandi í yngsta aldurshópnum eigi þetta við sjúklinga á öllum aldri.