Lonely Planet mælir með Akureyri

Fyrir skemmstu var birt á heimasíðu útgefenda ferðahandbókanna Lonely Planet afar lofsamleg grein um Akureyri og mælt með heimsókn til bæjarins fyrir þá sem væru búnir að skoða París, Róm, Madríd og aðrar stórborgir. Þar segir meðal annars að Akureyri slái út höfuðborgina hvað fegurð varðar og á kaffihúsum og börum í Hafnarstræti sé afslappað andrúmsloft sem minni helst á París.

Mælt er með helgarferðum til sex borga eða bæja og um Akureyri segir:

Framandi fegurð umlykur Ísland og stærsti þéttbýliskjarni landsins utan höfuðborgarsvæðisins stendur fyrir sínu og meira en það. Bænum var vel valinn staður við jökulbláan fjörð og tignarleg fjöll: Akureyri tekst að slá höfuðborginni Reykjavík við hvað fegurð varðar. Á kaffihúsum og börum sem standa þétt saman við aðalgötuna Hafnarstræti ríkir afslappað andrúmsloft sem minnir helst á París. Yfir daginn er þar á boðstólum fyrsta flokks bakkelsi og kaffi en á kvöldin breytast þessir staðir í líflegar vínbúllur og veitingahús. Heimsækið vinalegan eftirlætisstað heimamanna, Bautann, og smakkið íslenskt lostæti á borð við svartfugl og hrossakjöt. Á sumrin neitar sólin að setjast og þá er meira að segja hægt að spila golf um miðnætti hjá Golfklúbbi Akureyrar.

Greinina hjá Lonely Planet má lesa HÉR.

 

Nýjast