Lokað fyrir vatnið í Hrísalundi á morgun

Vegna vinnu við að fjarlægja hitaveitubrunna í Hrísalundi á Akureyri og vinnu við að svera upp stofnlögn hitaveitu að KA svæðinu er nauðsynlegt að taka heita vatnið af stærstum hluta Hrísalundar á morgun frá kl. 8.30 og fram eftir degi.

 

Viðskiptavinir eru beðnir um að gæta vel að húsveitum sínum og kynna sér "GÓÐ RÁÐ KOMI TIL ÞJÓNUSTUROFS" á heimasíðu Norðurorku

Nýjast