Lögreglumönnum á Norðurlandi verður fjölgað um tíu

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögur þverpólitískrar þingmannanefndar, þar sem lagt er til hvernig 500 milljóna króna viðbótarframlagi til löggæslu verði skipt. Almennum lögreglumönnum fjölgar um 44 á þessu ári, auk þess sem auk þess sem fjölgað verður sérstaklega um átta lögreglumenn til rannsókna skipulagðra glæpa og kynferðisbrota. Í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu segir að helstu áherslur átaksins til eflingar löggæslu séu fjórarþættar:

  • Almennum lögreglumönnum fjölgar um 44 á þessu ári, auk þess sem fjölgað hefur verið sérstaklega um átta lögreglumenn til rannsókna skipulagðra glæpa og kynferðisbrota.

  • Aukið öryggi almennings er lykilatriði, þannig að á þessu ári fer aukningin helst til landsbyggðar og þeirra staða sem helst skortir lágmarksmannafla.

  • Búnaður, þjálfun, tækjakostur og endurmenntun lögreglumanna verður bætt.

  • Eftirlit lögreglu á vegum verður aukið og þannig gert ráð fyrir auknum kostnaði vegna aksturs. 

    Tillögurnar miða við að lögregluembættin geti strax auglýst lausar stöður og að ráðningar geti hafist frá og með 1. mars.

    Samkvæmt tillögunni mun lögreglumönnum fjölga um fimm á Vesturlandi, tvo á Vestfjörðum, tíu á Norðurlandi, sex á Austurlandi, níu á Suðurlandi og tvo á Suðurnesjum. Þá mun lögreglumönnum fjölga um átta á höfuðborgarsvæðinu og tveir verða ráðnir til embættis ríkislögreglustjóra vegna þjálfunar lögreglumanna.

Nýjast