Lögreglan biður ökumenn að aka varlega

"Nokkuð hefur borið á því að bændur hafa haft samband við lögregluna og óskað aðstoðar við að koma skilaboðum til ökumanna um að þeir aki sérstaklega varlega og sýni aðgæslu í nágrenni við sveitabæi þessa dagana.  Sauðburður er langt kominn hjá flestum bændum og bændur farnir að sleppa lömbum út þegar veður er gott.  Því miður hefur eitthvað borið á því að lömb hafi sloppið út á veg þar sem þau far...a í gegnum flestar girðingar meðan þau eru lítil. Viðkomandi bændur vilja hafa gott samstarf  við ökumenn til að tryggja öryggi allra og hafa sem dæmi nokkrir bændur í Svarfaðardal og Skíðdal brugðið á það ráð að setja upp skilti sem greina frá því að lömb gætu slysast upp á veg. Bændur lofuðu að gera sitt til að hafa girðingar í lagi og vonum við að ökumenn taki þetta til grein," segir í tilkynningu lögreglunnar.

Nýjast