Lögreglan á Akureyri: Ársverkum fækkað um fimmtung

Lögreglustöðin á Akureyri
Lögreglustöðin á Akureyri

 Samkvæmt nýrri skýrslu innanríkisráðuneytisins hefur ársverkum lögreglumanna fækkað jafnt og þétt á undanförnum fimm árum. Ársverk lögreglumanna í landinu voru 730 árið 2007 en þau voru 642 í fyrra. Ársverkum hefur með öðrum orðum fækkað um 87 á þessu fimm ára tímabili.

Á Akureyri voru ársverkin 39 árið 2007 en 32 í fyrra. Þar hefur ársverkum því fækkað um sjö, eða um nærri fimmtung.

Fjárveitingar til lögreglumála hafa dregist verulega saman á tímabilinu, samtals um 2,8 milljarða króna og ráðuneytð segir brýnt að huga að grunnþáttum í starfi lögreglunnar. „Forgangsatriði er að fjölga  lögreglumönnum sem annast útköll og almennt lögreglueftirlit og nauðsynlegum búnaði því þengdu,“ segir orðrétt í skýrslunni.

Dregið hefur verið úr þjálfun og námskeiðum, auk þess sem eignakaup og endurnýjun búnaðar eru í algjöru lágmarki. Þá hefur hægt á rannsóknum í einstökum málaflokkum, sem þýðir almennt að málsmeðferðartími lengist verulega í þeim brotaflokkum sem ekki eru í forgangi.

Gamall varnarbúnaður

Í skýrslunni er sérstaklega rætt um tækja- og búnaðarmál. Sem dæmi sé nokkur hluti af varnabúnaði orðinn úr sér genginn. Til dæmis séu skotvesti frá 1995 og 2005 komin fram yfir líftíma þeirra. Á Akureyri eru skráð níu slík vesti.

Skotvopn

Ríkislögreglustjóri gerði á árinu 2006 tillögur um eflingu búnaðar og þjálfunar, ástandið hefur samt sem áður tekið litum breytingum til batnaðar frá þeim tíma.

Á Akureyri eru skráðar 19 skambyssur, 3 rifflar, 4 haglabyssur og 4 önnur skotvopn.

Almenn löggæsla

Fækkun lögreglumanna hefur dregið verulega úr frumkvæðisvinnu, svo sem með umferð, fíkniefnum og vínveitingahúsum. „Dæmi um önnur störf, sem lögreglan hefur dregið úr að sinna – eða sinnir ekki – eru útköll vegna hávaða nágranna, minni háttar þjófnaðarmál eða eignarspjöll,“ segir í skýrslunni um stöðu lögreglunnar.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast