Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri var formlega samþykktur á félagsfundi í Lárusarhúsi í kvöld. Logi Már Einarsson bæjarfulltrúi leiðir listann og í öðru sæti er Sigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari. Logi Már sagði í ávarpi að Samfylkingin væri í lægð á landsvísu, ekki síst á Akureyri
Við fórum illa út úr síðustu kosningum. Aðstæður voru með þeim hætti öllum að hinum hefðbundnu flokkum var sýndur fullur fjandskapur af bæjarbúum og eiginlega vantraust. Það sem gerir okkar stöðu flókna og erfiða í dag, er að við höfum ekki fyllilega náð flugi og lyft okkur upp úr þessum öldudal. Við munum núna á næstu klukkutímum, sjá skoðanakönnun sem staðfestir að Samfylkingin er ennþá í sama vanda og hún hefur verið í þrjú til fjögur ár. Þess vegna verður þessi kosningabarátta óvenju skemmtileg, vegna þess að það er gríðarlega skemmtilegt verkefni og mikil áskorun að lyfta sér upp úr sáralitlu fylgi og mjaka sér fram úr öðrum flokkum og ná góðum árangri í vor, sagði Logi Már.
Framboðslistinn:
1. Logi Einarsson
2. Sigríður Huld Jónsdaóttir
3. Bjarki Ármann Oddsson
4. Dagbjört Pálsdóttir
5. Eiður Arnar Pálmason
6. Ólína Freysteinsdóttir
7. Árni Óðinsson
8. Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir
9. Ragnar Sverrisson
10. Vala Valgarðsdóttir
11. Pétur Maack
12. Rósa Dröfn Guðgeirsdóttir
13. Þorgeir Jónsson
14. Linda María Ásgeirsdóttir
15. Jón Ingi Cæsarsson
16. Bryndís Hulda Ríkharðsdótir
17.Hreinn Pálsson
18. Kristín Sóley Sigursveinsdóttir
19. Unnar Jónsson
20. Magnús Aðalbjörnsson
21. Guðlaug Hermannsdóttir
22. Hermann Jón Tómasson