Vinnustofan fer fram í Samkomuhúsinu 21. apríl kl. 10:00-16:00 og ef veður leyfir að einhverju leyti utan dyra. Fólki á öllum aldri 8-80 ára frá öllum þjóðfélagshópum er velkomið að taka þátt.
Þetta eins dags námskeið er hluti af rannsóknarferli Locus fyrir sýninguna og þau myndu vera þakklát fyrir að deila sögum með þátttakendum og leika með efnið úti á gólfi.
Það verður ljósmyndari/kvikmyndagerðarmaður með í liðinu sem heldur efninu sem til verður til haga.
Sýningin kannar boxinn sem við erum sett í innan fjölskyldna okkar frá bernsku: t.d Gunna er þessi fyndna, Jón hinn íþróttalegi og hvernig við vinnum með og vinnum okkur út úr þessum boxum í gegnum lífið. Við endurtökum oft þessi mynstur í vinskap, á vinnustöðum og samböndum og eigum stundum í baráttu við okkar eigin upplifun af sjálfum okkur og upplifun annarra af því hver við erum.
Locus Theatre Company er staðsett í Kaupmannahöfn og fyrir þessa sýningu er sett saman af írska leikstjóranum Caroline McSweeney, danska performerinum Lisbeth Sonne Anderson og írska kvikmyndagerðarmanninum og ljósmyndaranum Stephen Hutton.
Hafir þú áhuga á að taka þátt, vinsamlega hafðu samband við miðasölu Leikfélags Akureyrar, 4 600 200 eða á netfangið midasala@leikfelag.is Eins og áður segir er aðgangur öllum heimill og þátttakendum að kostnaðarlausu. segir í tilkynningu frá LA.