Lítil lausaumferð

Hótel Kea.
Hótel Kea.

Athygli vekur hversu lítil fjölgun er á gistinóttum á Norðurlandi í sumar miðað við önnur svæði en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni er minnsta fjölgunin norðan heiða. Gistinóttum á hótelum á Norðurlandi fjölgaði um 4% í júní í sumar miðað við sama mánuð á síðastliðnu ári en þær voru 17.700 samanborið við 17.000 í júní árið 2011.Til samanburðar nam aukning á Austurlandi í þessum sama mánuði á milli áranna 2011 og 2012 alls 19 % og 12 % á Suðurlandi.

Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri á Keahótelanna, segist ekki geta rengt þessar tölur og að þær komi sér ekki á óvart. „Það hefur verið rólegt fyrri hluta sumars og alla lausaumferð hefur vantað. Hátt eldsneytisverð getur verið ástæðan ásamt ýmsu öðru,” segir Páll.

Nýjast