List án landamæra er síbreytileg og lifandi hátíð þar sem fatlaðir og ófatlaðir mætast og vinna saman í list sinni. Hátíðin á Norðurlandi er vettvangur viðburða og stendur frá 3.22. maí.
Opnunarhátíðin verður laugardaginn 3. maí kl. 14 í Síðuskóla á Akureyri. Þar mun bæjarstjórinn á Akureyri Eiríkur Björn Björgvinsson setja hátíðina og leikhópurinn Hugsanablaðran sýna leikþáttinn "Ef þú giftist " eftir Sögu Jónsdóttur. Sögumaður er Skúli Gautason og Anna Breiðfjörð aðstoðar hópinn við dansatriðið. Tónlist skipar einnig veglegan sess á opnunarhátíðinni. Nemendur í tónlistarhópi Fjölmenntar verða með tónlistaratriði í umsjón Skúla Gautasonar og tónlistarfólkið Jón Hlöðver Áskelsson, Stefán Ingólfsson og María Gunnarsdóttir flytja nokkur lög, meðal annars "Sjónarmið", nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver. Að lokinni dagskrá býður Þroskahjálp upp á vöfflur og kaffi.
Vorfánar og alls konar myndir munu dagana 9.23. maí prýða verslunina Eymundsson á Akureyri. Það eru verk eftir notendendur í Skógarlundi sem mynda sýninguna en hún er opin á opnunartíma verslunarinnar.
Garðurinn blómstar í Skógarlundi fimmtudaginn 15. maí og föstudaginn 16. maí kl. 9-11 og 1315.30. Þá er gestum og gangandi boðið að koma í heimsókn. Í garðinum verða sýnd verk notenda sem eru unnin undir handleiðslu myndlistarkonunnar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur og starfsmannafélag Skógarlunds mun selja veitingar.
Af öðrum dagskrárliðum Listar án landamæra á Norðurlandi má nefna opið hús í Iðjunni á Siglufirði fimmtudaginn 8. maí og föstudaginn 9. maí kl. 9-17. Þar gegna tónlist og ljóðalestur mikilvægu hlutverki ásamt handverkssýningu notenda Iðjunnar. Á Húsavík verður opið hús, vormarkaður og kaffihúsastemning í Miðjunni laugardaginn 17. maí kl. 1416. Í Samkomuhúsinu á Húsavík verða þrjár sýningar sunnudaginn 18. maí á Stuttmyndinni X kl. 13, 15 og 17. Þetta er hetjustuttmynd byggð á Þrymskviðu og hinum japönsku sentai ofurhetjum en myndin er unnin í samstarfi við Sam og Marinu Rees.
Markmið Listar án landamæra er að auka aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu. Að koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni og hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum. Það er von aðstandenda hátíðarinnar að sem flestir komi og njóti þess sem um er að vera.
Nánari upplýsinga má finna á www.listin.is.