Þetta leikrit mun vafalaust koma mörgum á óvart. Þrátt fyrir að verkið fjalli um líf samkynhneigðra kvenna þá er það líka um svo ótal margt annað. Það er skemmtilega skrifað og kryddað með óborganlegum skírskotunum í daglegt líf fólks af öllu tagi. Ég hvet alla sem tækifæri hafa til þess að sjá þessa uppfærslu hjá Leikfélagi Akureyrar. Þrátt fyrir að verkið sé um konur og leikið af konum þá skemmtu karlkyns áhorfendur sér ekki síður á þeirri sýningu sem ég sat. Þetta er raunsætt en jafnframt ótrúlega fyndið verk sem ekki má missa af, skrifar Bryndís Loftsdóttir. Hún gagnrýnir verkið á Pressunni.