Líneik Anna Sævarsdóttir skólastjóri á Fáskrúðsfirði býður sig fram í 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Hún er fædd 1964, uppalin á Héraði, hefur búið á höfuðborgarsvæðinu, á Vesturlandi og býr nú í Fjarðabyggð. Hún hefur lært líffræði, kennslufræði og örlítið í stjórnun og starfað við fræðslumál síðustu 20 árin. Þá hefur hún unnið að sveitarstjórnarmálum og öðrum félagsstörfum.
Ég legg áherslu á að vinna með hagsmuni allra Íslendinga að leiðarljósi, frá sjónarhóli þess sem hefur lifað og starfað í Norðausturkjördæmi meirihluta ævinnar. Ég vil hlusta á fjölbreytt sjónarmið og leggja mitt að mörkum til að finna lausnir sem byggja á grunngildum lýðræðis, jafnræðis og samfélagslegrar ábyrgðar", segir Líneik í tilkynningu.