Lífleg fasteignaviðskipti

Veltan í fasteignaviðskiptum á Akureyri var 413 milljónir króna í síðustu viku. Alls var þinglýst 12 kaupsamningum.Þar af voru fjórir samningar um eignir í fjölbýli, sjö samningar um sérbýli og einn samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Síðustu þrjá mánuði hefur veltan verið að jafnaði hátt í 200 milljónir króna, þannig að síðasta vika var nokkuð lífleg. Að jafnaði seljast átta fasteignir á viku, en í síðustu vikur voru samningarnir eins og fyrr segir tólf talsins.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast