Líf og fjör á makrílveiðum

Mynd: Þorgeir Baldursson.
Mynd: Þorgeir Baldursson.

Mikil stemmning hefur verið á Torfunefsbryggjunni við Pollinn á Akureyri síðustu daga en markríll hefur veiðst í höfninni í miklum mæli. Bryggjan hefur verið þéttskipuð ungum sem öldnum sem renna fyrir fiski. Sumir sleppa makrílnum jafnóðum aftur en aðrir hyggjast matreiða hann og leggja sér til munns. Þeir sem til þekkja segja makríllinn fínasta grillmat á heitum sumardegi.

Nýjast