Í tilefni þess að senn eru 130 ár liðin frá fæðingu Jóns Rögnvaldssonar, fyrsta formanns Skógræktarfélags Eyfirðinga og forstöðumanns Lystigarðsins um árabil verður boðið til göngu honum og samverkafólki hans til heiðurs um Lystigarðinn á laugardag, 21. júní kl. 10.
Jón nam ungur garðyrkju, var á síðustu öld öflugur málsvari græna geirans og beitti sér mjög fyrir nýsköpun og framförum á þeim sviðum.
Mæting er við aðalhlið Lystigarðsins. Þaðan verður gengin lítill hringur þar sem nokkur verka hans verða skoðuð og fræðst um líf og starf Jóns. Minnisvarði um Jón Rögnvaldsson er í Lystigarðinum.
Ketilkaffi og kakó í boði að lokinni göngu.