Töluverð umræða skapaðist í síðustu viku um dimmision í Verkmenntaskólanum á Akureyri, þar sem nokkrir nemendur neyttu áfengis innan veggja skólans og í kjölfarið ákvað Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari, að slá skemmtunina af.
Hjalti Jón segir að frásagnir í fjölmiðlum af þessu hafi ekki allar verið sannleikanum samkvæmt.
Þetta fór allt ákaflega vel af stað snemma um morguninn. Ég tók þátt í því að skenkja krökkunum kakó í norðanhraglandanum áður en þeir fóru af stað á vögnum um bæinn til þess að kveðja kennarana sína, eins og venja er til.
Úr þessari bæjarferð komu nemendur síðan aftur hingað í skólann milli átta og hálf níu. Þá varð okkur ljóst að býsna stór hópur nemenda var undir áhrifum áfengis og sumir fóru ekkert leynt með bjórdósirnar hér inni í Gryfju.
Það færðist síðan smám saman fjör í leikinn, en alls ekki þannig að þetta væru einhverjar óspektir, það vil ég undirstrika. Þegar síðan nemendurnir voru að fara að búa sig aftur til ferðar á vögnunum út í bæ, varð mér ljóst að þetta gæti ekki gengið svona lengur, enda er dimmision í nafni skólans, og tók því þá ákvörðun að slá þetta af.
Eðlilega var þetta ekki vinsæl ákvörðun hjá mörgum, en hins vegar voru margir sem skildu hana fullkomlega.
Því má ekki gleyma í þessu sambandi að áfengi og að vera undir áhrifum áfengis í skólanum er stranglega bannað. Það var ekki auðvelt að rökræða þessa ákvörðun við nokkra úr hópnum, enda ástand þeirra misjafnt.
En að nemendur hafi verið með óspektir og unnið einhver spjöll, eins og kom fram í fjölmiðlum, við það kannast ég ekki.
Ítarlega er rætt við Hjalta Jón í prentútgáfu Vikudags