Liðlega 500 án vinnu á síðasta ári

Samkvæmt tölum Vinnumálastofu voru að jafnaði 507 á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra á nýliðnu ári. Flestir voru á atvinnuleysisskrá í janúar, 672. Fæstir voru á skrá í ágúst, 387 manns.

Að jafnaði voru 260 konur á Norðurlandi eystra skráðar án atvinnu á árinu, sem þýðir að hlutfallslegt atvinnuleysi var 5,2%, en á landinu öllu var hlutfallið 4%.

247 karlar á Norðurlandi eystra voru að jafnaði á atvinnuleysisskrá, eða 3,2% á vinnumarkaði. Á landsvísu var hlutfallið 4,0%.

 

Nýjast