Veðurpáin fyrir Norðurland eystra lofar góðu. Í dag verður hægviðri og léttskýjað og hiti á bilinu 0 til 4 stig þegar kemur fram á daginn. Í kvöld þykknar svo upp og á morgun verður lítilsháttar éljagangur og vægt frost.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er hálka eða hálkublettir nokkuð víða á Norðausturlandi.