Léttleikinn í fyrirrúmi

Óskar Pétursson. Mynd/Morgunblaðið.
Óskar Pétursson. Mynd/Morgunblaðið.

„Þetta er í fjórða sinn sem ég efni til tónlistarveislu á Akureyri um páskana, þannig að þetta er að verða fastur liður hjá mér á laugardeginum fyrir páska,“ segir Óskar Pétursson söngvari, sem tekur á móti góðum gestum í Hofi í kvöld. „Blessunarlega kann fólk vel að meta þetta uppátæki mitt, miðasalan hefur gengið vel og þess vegna hefur verið ákveðið að skella á aukatónleikum.“

 Gestir Óskars að þessu sinni eru Eurovisionfarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson, skemmtikrafturinn og söngvarinn Örn Árnason, stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson, tenórinn Birgir Björnsson og sönghópurinn Fósturlandsins Freyjur. Um undirspil sjá Jónas Þórir og Matthías Stefánsson ásamt hljómsveit sem Gunnars Þórðarson stjórnar. „Ég get óhræddur lofað góðri skemmtun, enda um að ræða einvalalið sem verða gestir mínir. Það á allt að vera klárt, allur undirbúningur er frá og núna er nánast bara að bíða eftir sjálfum tónleikunum.“

 

karleskil@vikudagur.is

Nýjast