Seðlabanki Íslands hefur lokið rannsókn sinni á meintum brotum Samherja á gjaldeyrislögum og sent málið til meðferðar hjá sérstökum saksóknara. Bankinn gerði húsleit á skrifstofum Samherja í mars í fyrra og hafa stjórnendur Samherja gagnrýnt hversu langan tíma rannsóknin hefur tekið.
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja og Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri sendu starfsfólki fyrirtækisins bréf í morgun. Þeir segja að bankinn hafi byggt málið á rangfærslum og vanþekkingu á rekstri fyrirtækisins, þeir sem skoði málið hjá embætti Sérstaks saksóknara sýni vonandi meiri fagmennsku en Seðlabankinn.
Samherji er sem fyrr tilbúinn til að veita alla þá aðstoð og upplýsingar um málið sem óskað er eftir, enda ljóst að hagsmunir félagsins eru þeir að málinu ljúki sem allra fyrst, segir í bréfinu til starfsfólksins í morgun.
Léttir
Það er léttir fyrir Samherja að nú sé loksins komin hreyfing á þetta mál eftir 13 mánuði, segja þeir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson.
Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags í dag
karleskil@vikudagur.is